
Góð ráð fyrir fasteignaljósmyndun
Hvernig á að undirbúa heimilið fyrir myndatöku
Fyrsta hughrif skipta öllu máli þegar kemur að fasteignasölu. Vandaðar ljósmyndir eru öflugasta tólið til að fanga athygli kaupenda og fá þá til að bóka skoðun. Hér eru nokkur lykilatriði til að tryggja að fasteignin þín líti sem best út á myndum:
1. Minna er meira (De-cluttering)
Fjarlægðu alla óþarfa hluti af borðum og gólfum. Markmiðið er að sýna rýmið sjálft, ekki innbúið.
-
Eldhús: Tæmdu eldhúsbekki eins og hægt er. Fjarlægðu brauðristar, kaffivélar (nema þær séu mjög flottar)
-
Baðherbergi: Fjarlægðu tannbursta, sjampóbrúsa úr sturtunni og notað handklæði. Hrein, nýleg handklæði í stíl geta þó verið inni.
-
2. Birtan er lykilatriði
Góð lýsing gerir rýmið stærra og opnara.
-
Opnaðu allar gardínur og rúllugardínur til að hleypa dagsbirtunni inn.
-
Gættu þess að allar ljósaperur í herberginu séu í lagi sé kveikt á þeim
-
3. Persónulegir hlutir lágmarkaðir
Kaupendur þurfa að geta ímyndað sér sjálfa sig í rýminu.
-
Taktu niður persónulegar fjölskyldumyndir, segulstál af ísskápnum og dót eftir gæludýr.
-
4. Garðurinn og útlit hússins
Ytra byrðið er það fyrsta sem fólk sér.
-
Leggðu bílnum þannig að hann sjáist ekki í innkeyrslunni.
-
Gættu þess að ruslatunnur séu ekki sýnilegar og að garðurinn sé snyrtilegur.
-
5. Litlu smáatriðin sem telja
-
Pússaðu spegla og glerflöt svo engin fingraför sjáist.
-
Lokaðu klósettsetunni.
-
Settu fersk blóm eða ávexti í skál til að lífga upp á rýmið.
